Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 20.9.2007
| 8:08
Tveir leikmenn Liverpool fótbrotnir
Daniel Agger verður frá keppni næstu vikurnar. Reuters
Ian Cotton talsmaður Liverpool greindi frá því á vef félagsins að hvorugur þeirra þyrfti að fara í aðgerð en þeir komu ekkert við sögu í leik Liverpool gegn Porto í Meistaradeildinni á þriðjudag en talið er að þeir hafi orðið fyrir meiðslunum í leikjum með landsliðum sínum í síðustu viku.
Þeir koma til með að missa af deildarleikjunum gegn Birmingham, Wigan, Tottenham og Everton auk leiksins við Marseille í Meistaradeildinni sem fram fer 3. október á Anfield.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






