Vialli í viðræðum við QPR

Gianluca Vialli er hugsanlega að taka við liði QPR.
Gianluca Vialli er hugsanlega að taka við liði QPR. Reuters

Bernie Ecclestone hinn nýji eigandi enska 1. deildarliðsins QPR staðfesti við breska fjölmiðla í dag að félagið eigi í viðræðum við Ítalann Gianluca Vialli um að taka við knattspyrnustjórastarfi hjá liðinu í stað John Gregory sem rekinn var í gær.

Ecclestone, sem er þekktur í fomúlu 1 bransanum, sagði að meðeigandi sinn, Flavio Briastore, hafi rætt við Vialli en í síðustu viku var Vialli sterklega orðaður við QPR þar sem sást til hans á leik með liðinu ásamt því að hann og Briastore eru góðir vinir.

Hvorki hefur gengið né rekið hjá QPR en liðið situr eitt á botni 1. deildarinnar með aðeins 3 stig eftir sjö leiki.

Vialli lék með Chelsea á árunum 1996 til 1999 en tók síðan við knattspyrnustjórastarfi hjá félaginu og stýrði því frá 1998-2000. Þaðan lá leið hans til Watford þar sem hann var við stjórnvölinn í tvö ár.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert