Benítez: Sýndum þolinmæði

Fernando Torres fagnar marki sínu ásamt landa sínum Pepe Reina.
Fernando Torres fagnar marki sínu ásamt landa sínum Pepe Reina. Reuters

Rafel Benítez knattspyrnustjóri Liverpool leyfði sér að brosa út í annað eftir sigur sinna manna á Fulham, 2:0, í kvöld. Þetta var aðeins annar sigur Liverpool á heimavelli í úrvalsdeildinni í ár en Liverpool og Arsenal eru einu liðin sem hafa ekki tapað leik í deildinni á tímabilinu.

,,Við þurftum að sýna mikla þolinmæði. Markvörður þeirra var mjög góður en við fengum fullt af færum. Við vissum að Fulham myndi berjast vel en við urðum að halda áfram, láta boltann vinna og það tókst að lokum að innbyrða sigur. Það er alltaf mikilvægt að vinna en sérstaklega þegar langt frí er framundan og okkar stuðningsmenn verða því ánægðir, að minnsta kosti næstu 10 til 15 dagana," sagði Benítez eftir leikinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert