Hermann enn á bekknum

Hermann Hreiðarsson leikmaður Portsmouth.
Hermann Hreiðarsson leikmaður Portsmouth. AP

Hermann Hreiðarsson verður að sætta sig við að vera á varamannabekk Portsmouth fjórða leikinn þegar liðið sækir Aston Villa heim í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en leikur liðanna hefst á Villa Park klukkan 12.45.

Frakkinn Noe Parmarot heldur Hermanni utan við liðið en Parmarot tók stöðu Eyjamannsins þegar hann meiddist. Hermann var í byrjunarliði Portsmouth í fyrstu 11 leikjunum og lék afar vel og náði að skora eitt mark.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert