Thierry Henry gat ekki æft með Barcelona í dag vegna veikinda og ríkir óvissa um þátttöku hans í leik Barcelona og Manchester United sem eigast við í fyrri undanúrslitaleiknum í Meistaradeildinni á Nou Camp á miðvikudagskvöld.
Henry kom ekkert við sögu í leik Börsunga gegn Espanyol í spænsku 1. deildinni á laugardagskvöldið en Frakkinn sat á bekknum allan tímann og sá félaga sína gera markalaust jafntefli.