Torres tryggði Liverpool sigurinn

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, og Vedran Corluka eigast við í …
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, og Vedran Corluka eigast við í leiknum í dag. Reuters

Liverpool sigraði Manchester City, 1:0, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag en leikurinn fór fram á Anfield.

Staðan var 0:0 í hálfleik og litlu munaði að Manchester City næði forystunni í seinni hálfleik þegar Elano skaut í stöng úr aukaspyrnu. City hafði fram að þeim tíma varla átt hættulega sókn í leiknum.

Fernando Torres skoraði fljótlega eftir það sigurmark Liverpool, 1:0. Hann skoraði þar með í áttunda heimaleik liðsins í röð og sitt 32. mark á tímabilinu.

Dirk Kuyt var nálægt því að bæta öðru marki við fyrir Liverpool þegar hann átti skalla í þverslá. José Reina í marki Liverpool þurfti síðan að vera vel á verði þegar hann varði þrumuskot frá Benjani Mwaruwari úr aukaspyrnu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert