Redknapp: Vörnin var frábær

Sol Campbell lyftir bikarnum og Hermann Hreiðarsson fagnar ásamt félögum …
Sol Campbell lyftir bikarnum og Hermann Hreiðarsson fagnar ásamt félögum sínum í Portsmouth á Wembley í dag. Reuters

Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Portsmouth, sagði eftir sigurinn á Cardiff City, 1:0, í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar í dag að Hermann Hreiðarsson og félagar í vörn liðsins hefðu staðið sig frábærlega.

„Þetta er stórkostlegt. Draumurinn hefur ræst og við erum orðnir bikarmeistarar. Fyrir mig og fjölskyldu mína, stuðningsmenn okkar og leikmennina hefur þetta verið góður dagur.

Cardiff setti mikla pressu á okkur og við þurfum að glíma við erfiðar stöður í leiknum. Vörnin hjá mínu liði var frábær. Þegar við náum forystu er erfitt að brjóta okkur niður þar sem við erum með menn á borð við Sol Campbell, David James, Sylvain Distin, Hermann Hreiðarsson og Glen Johnson til að verjast," sagði Redknapp við BBC.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert