Liverpool kaupir Degen

Rafael Benítez fær sér bakvörð.
Rafael Benítez fær sér bakvörð. Reuters

Liverpool festi í dag kaup á svissneska bakverðinum Philipp Degen frá þýska liðinu Borussia Dortmund. Hinn 25 ára gamli leikmaður á að baki 26 landsleiki en hann kom til Dortmund yfir þremur árum frá Basel.

„Hans helsti styrkur er að fara fram. Hann er sóknarsinnaður leikmaður með mikinn kraft og hann er fæddur sigurvegari,“ sagði Rafael Benítez, stjóri Liverpool þegar allt var frágengið.

Bakvörðurinn var ánægður: „Þegar ég fékk tilboð frá Liverpool var ekki spurning að ég tæki því. Þetta er eitt af stærstu félögum í heimi og ég hlakka til að takast á við þessa áskorun,“ sagði hann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert