Crouch sagður á leið til Portsmouth

Peter Crouch er væntanlega á leið til Portsmouth.
Peter Crouch er væntanlega á leið til Portsmouth. Reuters

Að því er fram kemur í netútgáfu breska blaðsins Daily Mail hefur Liverpool loks samþykkt tilboð frá bikarmeisturum Portsmouth í sóknarmanninn Peter Crouch.

Harry Redknapp knattspyrnustjóri Portsmouth hefur lengi haft augastað á Crouch og ef marka má fregnir Daily Mail greiðir Portsmouth 10 milljónir punda fyrir framherjann hávaxna en það samsvarar rúmum 1,5 milljarði íslenskra króna.

Crouch er 27 ára gamall sem gekk í raðir Liverpool frá Southampton fyrir þremur árum.  Hann hefur spilað 85 leiki með liðinu og hefur í þeim skoraði 22 mörk og þá hefur hann skorað 14 mörk í 28 leikjum með enska landsliðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert