Adebayor ekki til sölu

Emmanuel Adebayor framherji Arsenal.
Emmanuel Adebayor framherji Arsenal. Reuters

Peter Hill-Wood stjórnarformaður Arsenal segir að Emmanuel Adebayor sé ekki til sölu en undanfarnar vikur hafa AC Milan og Barcelona reynt að fá Tógómanninn snjalla í sínar raðir og vitað er að Arsenal-menn höfnuðu 25 milljón punda tilboði í leikmanninn.

„Við viljum að hann verði hjá okkur. Hann á nokkur ár eftir af samningi sínum og það kemur ekki til greina af okkar hálfu að leysa hann undan þeim samningi,“ segir Hill-Wood í viðtali við Daily Telegraph.

Adebayor er bundinn samningi við Arsenal til ársins 2011 en hann átti góðu gengi að fagna með Lundúnaliðinu á síðustu leiktíð og skoraði 30 mörk fyrir félagi í öllum keppnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert