Hleb á leið í læknisskoðun hjá Barcelona

Aliaksandr Hleb er á leið til Barcelona.
Aliaksandr Hleb er á leið til Barcelona. Reuters

Arsenal og Barcelona hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Hvít-Rússans Aliaksandr Hleb og er hann nú á leið til Spánar þar sem hann gengst undir læknisskoðun hjá Börsungum.

Óvissa hefur ríkt um framtíð Hlebs frá því leiktíðinni á Englandi lauk í vor. Lengi vel stefndi í hann færi til Ítalíumeistara Inter en nú hafa Börsungar tryggt sér þjónustu hans að því er enskir og spænskir netmiðlar fullyrða í dag.

Hleb gekk til liðs við Arsenal frá þýska liðinu Stuttgart árið 2005 og greiddi Lundúnaliðið 11,2 milljónir punda fyrir hann sem í dag er að jafnvirði 1,7 milljarði króna. Hann lék 130 leiki með Arsenal-liðinu og skoraði í þeim 10 mörk.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert