Vieira vill leika með Lampard

Patrick Vieira vill ólmur fá Frank Lampard til liðs við …
Patrick Vieira vill ólmur fá Frank Lampard til liðs við Inter. Reuters

Franski landsliðsfyrirliðinn í knattspyrnu, Patrick Vieira leikmaður Inter Mílanó hvetur Frank Lampard í fjölmiðlum til að ganga til liðs við Inter frá Chelsea. Telur Vieira að Lampard geti vel haft sín áhrif á ítalska knattspyrnu gangi hann til liðs við félagið.

„Það mun vera stór áskorun fyrir hann að koma til Ítalíu en þó jafnframt stórkostleg áskorfun,“ sagði Vieira í samtali við breska dagblaðið Sunday Mirror. „Lampard hefur unnið allt sem hægt er að vinna hjá Chelsea og er einn af lykilmönnum liðsins. Hann er frábær leikmaður og menn í hans gæðaflokki eru menn sem við viljum fá til Inter,“ sagði Vieira.

Vieira er ekki fyrsti leikmaður Inter til að hvetja Lampard opinberlega til að ganga til liðs við Inter því í gær lét sóknarmaður liðsins, Julio Cruz hafa eftir sér svipuð orð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert