Keane færist nær Liverpool

Robbie Keane framherji Tottenham.
Robbie Keane framherji Tottenham. Reuters

Enskir netmiðlar greina frá því í kvöld að írski framherjinn Robbie Keane kunni að ganga til liðs við Liverpool á næstu dögum en Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool vill ólmur fá Keane til liðs við sig og fylla með því skarð Peter Crouch sem er kominn til Portsmouth.

Daily Mail segir frá því í netútgáfu sinni í kvöld að Keane hafi færst nær Liverpool og að Benítez leggi nú meiri áherslu á að fá Keane frekar en Gareth Barry frá Aston Villa í ljósi þess að ekkert varð úr sölu Xabi Alonso til Juventus.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert