Vill að Ferguson stýri ólympíuliði Bretlands

Sir Alex Ferguson með Evrópubikarinn sem hans menn unnu í …
Sir Alex Ferguson með Evrópubikarinn sem hans menn unnu í maí. Reuters

Sebastian Coe, aðalmaðurinn í undirbúningi Englendinga fyrir Ólympíuleikana sem haldnir verða í London 2012, segir að Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, sé tilvalinn til að stýra ólympíuliði Breta í knattspyrnu á leikunum.

Cole segist hafa rætt þetta við Ferguson sem hefur ákveðið að hætta störfum hjá Manchester United á næstu þremur árum en Ferguson hefur verið við stjórnvölinn hjá Manchester-liðinu í 21 ár.

,,Ég myndi gjarnan vilja fá Ferguson vegna þess að hann er magnaður þjálfari og frábær og tilvalinn í þetta starf,“ sagði Cole við breska ríkisútvarpið, BBC.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert