„Hermann, hættu nú að leika við börnin“

Hermann er barngóður mjög.
Hermann er barngóður mjög. Reuters

Hermann Hreiðarsson, knattspyrnumaður hjá Portsmouth, kom sér inn í sjónvarpsviðtal við félaga sinn Sol Campbell með heldur óvenjulegum hætti. Viðtalið, sem tekið var vegna leiks Portsmouth og Manchester United um Samfélagsskjöldinn á sunnudag, var nefnilega truflað af látum í krökkum Hermanns sem hann var að leika við.

Í myndbandinu sést hvernig Campbell reynir að svara spurningum fréttamanna þegar allt í einu heyrast öskur í krökkum. Á endanum er svo gert hlé og rödd heyrist segja „Hermann, hættu nú að leika við börnin.“

Myndbandið má sjá hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert