Adebayor með nýjan samning við Arsenal

Emmanuel Adebayor framherji Arsenal.
Emmanuel Adebayor framherji Arsenal. Reuters

Tógmaðurinn Emmanuel Adebayor hefur framlengt samningi sínum við Arsenal og er nú bundinn Lundúnaliðinu til ársins 2012. Adebayor var mikið í fréttunum í sumar en flest benti til þess að hann væri á förum frá Arsenal en bæði AC Milan og Barcelona föluðust eftir honum.

Adebayor, sem er 24 ára gamall, skoraði 30 mörk á síðustu leiktíð en hann kom til liðsins frá Monaco í janúar 2006. Talið er að með nýja samningnum fái Adebayor 80,000 pund í vikulaun en það jafngildir um 12,2 milljónum króna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert