Kapp best með forsjá

Enn hjá Real Madrid en peysur merktar honum komnar í …
Enn hjá Real Madrid en peysur merktar honum komnar í sölu í verslun Chelsea. Reuters

Það segir kannski sitt um kapp Chelsea að fá til sín Robinho frá Real Madrid að í verslun liðsins á Stamford Bridge má nú kaupa peysu liðsins merkta Brasilíumanninum þrátt fyrir að alls ekki sé frágengið að hann yfirgefi Real Madrid.

Snurða hefur nú hlaupið á snærið vegna kappans en Real vill ekki selja hann meðan þeir hafa ekki tryggt sér neinn annan í staðinn. Var áætlunin að kaupa David Villa eða Santi Cazarlo en hvorugir höfðu áhuga þegar á reyndi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert