George Burley: Lögðum hart að okkur að landa sigri

George Burley þjálfari Skota fagnar sigri sinna manna í kvöld.
George Burley þjálfari Skota fagnar sigri sinna manna í kvöld. Reuters

Þungi fargi var létt af George Burley landsliðsþjálfara Skota eftir sigurinn á Íslendingum í kvöld. Fyrir leikinn hafði hann stýrt liðinu í fjórum leikjum og enginn þeirra hafði unnist og mátti hann í kjölfarið þola harða gagnrýni frá skosku pressunni.

,,Þetta snýst um að vinna leiki og við lögðum hart að okkur að landa þessum sigri. Ég hélt að þetta væri öruggt þegar við vorum komnir í 2:0 en leikurinn er í 90 mínútur og þegar við misstum mann af velli var þetta erfitt. Nú tekur við heimaleikur á móti Norðmönnum og við reynum að ná aftur þremur stigum í þeim leik,“ sagði Burley eftir leikinn.

,,Eftir alla gagnrýnina sem ég hef fengið þá finnst mér liðið í góðri stöðu. Við erum með þrjú stig eftir tvo erfiða útileiki,“ sagði Burley.

mbl.is

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara Marinó Már Marinósson: 1-2
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert