Carragher: Náum vonandi þremur stigum

Jamie Carragher
Jamie Carragher Reuters

„United hefur verið betra en við undanfarin ár, en ég á von á hörkuleik við meistarana,“ segir Jamie Carragher, leikmaður Liverpool sem mætir Manchester í ensku deildinni í hádeginu á morgun.

Leikur Liverpool og United á Anfield er stórleikur umferðarinnar, en undanfarin ár hefur United haft betur en Liverpool vann United síðast í deildinni árið 2004.

„Þetta er einn af stóru leikjunum, en þegar leikjaplanið liggur fyrir þá byrja ég alltaf á að skoða hvenær við mætum United og Everton. Vonandi náum við þremur stigum á móti United, en það yrði gott fyrir sjálfstraustið fyrir komandi tímabil,“ sagði Carragher.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert