Enn eitt tapið hjá Tottenham

Defoe skoraði fyrra mark Portsmouth.
Defoe skoraði fyrra mark Portsmouth. Reuters

Hrakfarir Tottenham í ensku úrvalsdeildinni halda áfram en Lundúnaliðið tapaði fyrir Portsmouth, 2:0, á Fratton Park, heimavelli Portsmouth í dag.

Jermain Defoe skoraði fyrra markið úr vítaspyrnu á 34. mínútu og á 68. mínútu bætti Peter Crouch við öðru marki. Hermann Hreiðarsson sat allan tímann á varamannabekknum hjá Portsmouth sem hefur 9 stig eftir 6 leiki en Tottenham situr á botni deildarinnar með aðeins 1 stig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert