Zaki tryggði Wigan sigur á Manchester City

Wilson Palacios, til hægri, í baráttu Pablo Zabaleta á JJB …
Wilson Palacios, til hægri, í baráttu Pablo Zabaleta á JJB Stadium í dag. Reuters

Wigan bar sigurorð af Manchester City, 2:1, en liðin áttust við í ensku úrvalsdeildinni á JJB Stadium, heimavelli Wigan í dag. Öll mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik. Antonio Valencia kom Wigan með laglegu marki á 16. mínútu en Vincent Kompany jafnaði sex mínútum síðar með skoti af stuttu færi eftir hornspyrnu. Það var síðan Egyptinn Amr Zaki sem tryggði heimamönnum sigurinn með marki úr vítaspyrnu á 34. mínútu.

Wigan er 9.-10. sæti ásamt Manchester United með 8 stig en City er einu sæti ofar með 9 stig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert