Ronaldo í byrjunarliði United - Ferdinand hvíldur

Cristiano Ronaldo leikur listir sínar á Old Trafford í kvöld.
Cristiano Ronaldo leikur listir sínar á Old Trafford í kvöld. Reuters

Cristiano Ronaldo er í byrjunarliði Englands- og Evrópumeistara Manchester United sem taka á móti skoska meistaraliðinu Celtic í Meistaradeildinni í kvöld. Talið var líklegt að Sir Alex myndi hvíla Portúgalann snjalla en svo verður ekki. Hins vegar fær Rio Ferdinand að hvíla lúin bein en hann er ekki í leikmannahópi United.

Byrjunarlið Man Utd: Van der Sar - Neville, Evans, Vidic, O'Shea, Ronaldo, Anderson, Fletcher, Nani - Berabatov, Rooney.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert