Benítez: Apinn farinn af bakinu á Keane

Robbie Keane fagnar síðara marki sínu gegn WBA í kvöld.
Robbie Keane fagnar síðara marki sínu gegn WBA í kvöld. Reuters

Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool samgladdist Robbie Keane innilega eftir 3:0 sigur liðsins á WBA í kvöld. Keane skoraði tvö fyrstu mörkin í leiknum sem voru þau fyrstu sem hann skorar fyrir Liverpool í deildinni á tímabilinu.

,,Ég vildi sýna honum stuðning því hann hefur leikið vel og skilað góðu starfi fyrir liðið. Mörk eru mikilvæg fyrir framherja svo nú verður hann hamingjusamur og allir munu nú tala um hversu góður hann er. Ég held að hann hafi sagt að nú væri apinn farinn af bakinu á sér og vonandi heldur hann áfram að skora fyrir okkur og spila vel,“ sagði Benítez en eftir sigurinn er Liverpool með þriggja stiga forskot á Chelsea í toppsætinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert