Capello kallar Gerrard til skoðunar

Steven Gerrard skorar fyrir Liverpool gegn Bolton í leiknum á …
Steven Gerrard skorar fyrir Liverpool gegn Bolton í leiknum á laugardaginn. Reuters

Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands í knattspyrnu, hefur fyrirskipað Steven Gerrard, fyrirliða Liverpool, að mæta til skoðunar hjá læknum landsliðsins, þrátt fyrir að félag hans hafi tilkynnt að hann sé meiddur og verði frá keppni í 7-10 daga.

England mætir Þýskalandi í Berlín á miðvikudag en Liverpool tilkynnti í gærmorgun að Gerrard hefði rifið vöðva í fæti í leik liðsins gegn Bolton á laugardaginn og yrði frá keppni í 7-10 daga.

Capello ætlar greinilega að fylgjast með því að félögin hafi rétt við í þessum málum og enska knattspyrnusambandið mun gefa formlega út í dag hvort Gerrard sé leikfær eða ekki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert