Drogba viðurkennir brot sitt

Drogba kastar smápeningnum í átt að stuðningsmönnum Burnley.
Drogba kastar smápeningnum í átt að stuðningsmönnum Burnley. Reuters

Didier Drogba framherji Chelsea hefur viðkennt brot sitt en Fílabeinsstrandarmaðurinn var ákærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir að kasta smápeningi til stuðningsmanna Burnley í leik liðanna í deildabikarnum í síðustu viku.

Drogba kom Chelsea yfir í leiknum en í kjölfarið henti hann til  smápeningi til baka upp í áhorfendastúkuna þar sem stuðningsmenn Burnley voru. Drogba fékk gult spjald fyrir vikið en enska knattspyrnusambandið ákvað að kæra leikmanninn fyrir athæfið.

Aganefndin mun fjalla um málið á morgun og kveða upp dóm en fastlega má reikna með því að Drogba verði úrskurðaður í þriggja leikja bann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert