Markalaust jafntefli Everton og Chelsea

Alex stendur í ströngu í vörn Chelsea í kvöld. stækka

Alex stendur í ströngu í vörn Chelsea í kvöld. Reuters

Leik Everton og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld, lauk með markalausu jafntefli, þar sem liðsmenn Chelsea léku manni færri í 55 mínútur.

Fyrirliða Chelsea, John Terry, var vikið af velli á 35. mínútu fyrir ljóta tæklingu og virtust leikmenn Chelsea aldrei líklegir til afreka eftir það, þó svo þeir hafi haldið boltanum ágætlega innan liðsins.

Everton átti nokkur ágætis færi en tókst ekki aðnýta sér liðsmuninn. Þeir komu boltanum inn fyrir línuna þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum, en Steven Pienaar reyndist réttilega rangstæður.

Everton er því enn í sjöunda sæti deildarinnar, með 26 stig, en aðeins munar einu stigi á Chelsea og Liverpool, sem er efst í deildinni með 39 stig.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is