Ferdinand og Tevez ekki með United

Carlos Tevez.
Carlos Tevez. Reuters

Carlos Tevez, Rio Ferdinand og Patrice Evra verða fjarri góðu gamni með Manchester United á sunnudaginn þegar liðið sækir Southampton heim í 3. umferð ensku bikarkeppninnar.

Tevez er staddur í Argentínu en hann fékk frí til að heimsækja fjölskyldu sína. Ferdinand hefur ekki náð sér af meiðslum í baki og Evra tekur út leikbann. Sir Alex Ferguson sagði á fréttamannafundi í dag eð Ferdinand yrði heldur ekki með gegn Derby í undanúrslitum deildabikarsins á miðvikudaginn en hann ætti að verða klár í slaginn um aðra helgi þegar United tekur á móti Chelsea.

Ferguson segist ekki vera búinn að gera upp hug sinn hvort Ronaldo verði með gegn Southampton á sunnudaginn en mikið álag verður á liði Englandsmeistaranna á næstu vikum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert