Wenger segist ekki vera höttunum eftir Given

Shay Given markvörður Newcastle.
Shay Given markvörður Newcastle. Reuters

Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal segist ekki vera undirbúa tilboð í markvörðinn Shay Given en því hefur verið haldið  fram að Arsenal sé eitt þeirra liða sem eru á höttunum eftir Íranum. Given er ósáttur í herbúðum Newcastle og vill gjarnan reyna fyrir sér á öðrum vígstöðvum en hann hefur leikið með liðinu í 11 ár.

,,Við höfum ekki spurst neitt fyrir um Shay Given. Ég ber mikla virðingu fyrir honum sem leikmanni en við erum ekki á höttunum eftir markverði,“ sagði Wenger á vef Arsenal í dag.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert