Ronaldo ómeiddur eftir umferðarslys

Lögreglan í Manchester skoðar bifreið Ronaldos. stækka

Lögreglan í Manchester skoðar bifreið Ronaldos. Reuters

Cristiano Ronaldo leikmaður Manchester United lenti í umferðaróhappi í göngum nálægt flugvellinum í Manchester í morgun. Ronaldo ók Ferrari sportbíl sínum á vegartálma en Portúgalinn slapp án meiðsla og var mættur á æfingu hjá Englandsmeisturum skömmu síðar.

Lögreglan í Manchester greindi frá því að samherji Ronaldos í Manchester United-liðinu, Edwin van der Sar, hefði verið fyrir aftan Ronaldo á Bentley bifreið sinni en hann sakaði ekki.

Öndundarsýni var tekið af portúgalska knattspyrnukappanum og niðurstaða úr því var neikvæð en lögreglan vinnur að rannsókn hvað orskaði umferðaróhappið.

Cristiano Ronaldo.

Cristiano Ronaldo. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is