Bellamy ekki með West Ham í dag

Craig Bellamy.
Craig Bellamy. Reuters

Craig Bellamy er ekki í leikmannahópi West Ham í dag en liðið mætir Fulham á Boleyn Ground í dag og hefst rimma Lundúnaliðanna klukkan 13.30. Gianfranco Zola knattspyrnustjóri West Ham kaus að velja Bellamy ekki í hópinn og það skiljanlegt því Walesverjinn rauk í burtu á æfingu liðsins á föstudaginn, bálreiður yfir því að West Ham hafnaði tilboði frá Tottenham.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert