Cudicini til Tottenham

Carlo Cudicini er farinn frá Chelsea til Tottenham.
Carlo Cudicini er farinn frá Chelsea til Tottenham. Reuters

Enskir fjölmiðlar greina frá því í morgun að ítalski markvörðurinn Carlo Cudicini sé genginn í raðir Tottenham frá Chelsea. Að því er fram kemur í Daily Mail greiðir Tottenham 1 milljón punda fyrir Ítalann sem er 35 ára gamall og hefur verið í herbúðum Chelsea í tæpan áratug.

Harry Redknapp knattspyrnustjóri Tottenham sá sér ekki annað fært en að fá markvörð þar sem Brasilíumaðurinn Heurelho Gomes hefur spilað meiddur í síðustu leikjum og þá var Cesar Sanchez lánaður til Valencia út tímabilið fyrir skömmu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert