Hermann í byrjunarliði Portsmouth

Hermann Hreiðarsson.
Hermann Hreiðarsson. Reuters

Hermann Hreiðarsson er í byrjunarliði Portsmouth sem mætir Aston Villa á heimavelli sínum í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Hermann leikur í stöðu vinstri bakvarðar en hann átti góða innkomu í seinni hálfleik gegn Swansea í bikarkeppninni um síðustu helgi þar sem Portsmouth tapaði, 2:0.

Heiðar Helguson er í byrjunarliði QPR sem leikur á útivelli gegn Blackpool í ensku 1. deildinni.

Jóhannes Karl Guðjónsson er í byrjunarliði Burnley sem fær Watford í heimsókn.

Ívar Ingimarsson getur ekki spilað með Reading vegna meiðsla en Reading tekur á móti Wolves í toppslag deildarinnar. Brynjar Björn Gunnarsson er á meðal varamanna en Gylfi Þór Sigurðsson er ekki í leikmannahópnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert