Rooney mætir ekki gömlu félögunum

Rooney fagnar marki með Manchester United.
Rooney fagnar marki með Manchester United. Reuters

Wayne Rooney framherji Manchester United getur ekki mætt sínum gömlu félögum í Everton en Englandsmeistararnir fá Everton í heimsókn á Old Trafford annað kvöld.

Rooney hefur ekki jafnað sig af meiðslum en hann mun hefja æfingar aftur á mánudaginn að sögn Sir Alex Fergusons knattspyrnustjóra liðsins. Ferguson hafði vænst til þess að geta teflt Patrice Evra og Nani fram í leiknum gegn Everton en nú er ljóst að svo verður ekki. Þeir eru ekki alveg búnir að ná sér af meiðslum en þremenningarnir verða allir með gegn West Ham um næstu helgi sagði knattspyrnustjórinn.

Ekki er alveg víst að serbneski varnarmaðurinn Nemanja Vidic geti verið með á morgun en hann varð fyrir meiðslum á æfingu og það skýrist ekki fyrr en á morgun hvort hann verður leikfær.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert