Everton í átta liða úrslit bikarkeppninnar

Jack Rodwell er hér að koma Everton í 1:0 á …
Jack Rodwell er hér að koma Everton í 1:0 á Goodison Park. Reuters

Everton var að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu með því að bera sigurorð af Aston Villa, 3:1, á heimavelli sínum, Goodison Park. 

Hinn 17 ára gamli Jack Rodling skoraði fyrsta markið fyrir Everton á 4. mínútu en James Milner jafnaði metin fyrir Villa úr vítaspyrnu fjórum mínútum síðar. Mikel Arteta kom Everton aftur yfir með marki úr vítaspyrnu á 23. mínútu. Það var síðan Ástralinn Tim Cahill sem tryggði heimamönnum sigurinn með marki af stuttu færi stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Everton - Aston Villa, bein textalýsing


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert