Nigel Clough: United getur unnið alla fimm titlana

Danny Welbeck skorar fjórða mark Manchester United gegn Derby á …
Danny Welbeck skorar fjórða mark Manchester United gegn Derby á Pride Park í gær. Reuters

Nigel Clough knattspyrnustjóri Derby County segir að Manchester United geti vel hampað fimm titlum á tímabilinu en Clough sá Englandsmeistarana leggja lærisveina sína í 5. umferð ensku bikarkeppninnar á Pride Park í gær, 4:1.

,,Ég tel vel mögulegt fyrir United að vinna alla titlana. Ef eitthvað lið er fært um það þá er það Manchester United,“ sagði Clough.

United hefur þegar landað einum titli á þessu tímabili en liðið bar sigur úr býtum á heimsmeistaramóti félagsliða sem fram fór í Japan í desember. Liðið trónir á toppi úrvalsdeildarinnar, er komið í átta liða úrslit í bikarkeppninni, mætir Tottenham í úrslitaleik deildabikarkeppninnar og er í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

,,Ef United hefði spilað gegn Arsenal, Liverpool eða Chelsea í þessum ham þá hefði það getað skorað fjögur mörk gegn þeim,“ sagði Clough.

Manchester United mætir Fulham í frestuðum leik á Old Trafford á miðvikudagskvöldið. Með sigri í þeim leik ná meistararnir fimm stiga forskoti á toppi úrvalsdeildarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert