Stoke náði jöfnu á Villa Park

John Carew skoraði síðara mark Aston Villa.
John Carew skoraði síðara mark Aston Villa. Reuters

Nýliðar Stoke náðu jafntefli gegn Aston Villa á Villa Park í dag með því að skora tvö mörk á síðustu fjórum mínútum leiksins. Það stefndi í öruggan sigur Aston Villa en Stiliyan Petrov og John Carew komu liðinu í 2:0. Ryan Shawcross minnkaði muninn fyrir Stoke á 86. mínútu og í uppbótartíma jafnaði Glenn Whelan metin.

Aston Villa er í fjórða sæti, er þremur stigum á eftir Liverpool og Chelsea, en Stoke er í næst neðsta sæti deildarinnar með 26 stig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert