Mourinho sakaður um barsmíðar

Mourinho var niðurlútur eftir tapið gegn Manchester United í gær.
Mourinho var niðurlútur eftir tapið gegn Manchester United í gær. Reuters

Lögreglan í Manchesterborg rannsakar nú atvik sem átti sér stað eftir leik Manchester United og Inter í meistaradeildinni í gær. Stuðningsmaður Manchester liðsins hefur nefnilega sakað José Mourinho um að hafa kýlt sig kaldan á kjaftinn.

„Við erum að rannsaka ásökun um líkamsárás,“ staðfesti lögreglan, en hún rannsakar nú myndbönd úr eftirlitskerfi Old Trafford.

„Ef einhver vill gagnrýna lið mitt eftir frammistöðu þeirra í kvöld, verða þeir að slást við mig,“ sagði Mourinho við ítölsku pressuna eftir leikinn í gær, sem var mjög gagnrýnin og ágeng að venju. Virðist einhver hafa tekið Mourinho á orðinu, en beðið lægri hlut.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert