Enn einn sigurinn hjá Guðjóni og lærisveinum hans

Guðjón Þórðarson er að gera frábæra hluti með lið Crewe.
Guðjón Þórðarson er að gera frábæra hluti með lið Crewe. Ljósmynd/The Sentinel

Guðjón Þórðarson og strákarnir hans í Crewe Alexandra fögnuðu enn einum sigrinum í ensku 2. deildinni í knattspyrnu í dag. Crewe sótti Colchester heim og fór með sigur af hólmi, 1:0. Calvin Zola skoraði sigurmarkið á 63. mínútu.

Gylfi Þór Sigurðsson lék allan tímann með Crewe sem er komið upp í 17. sæti með 41 stig, er sex stigum frá fallsæti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert