Tottenham vann Chelsea

Tottenham fagnaði sigri á Chelsea í dag.
Tottenham fagnaði sigri á Chelsea í dag. Reuters

Tottenham vann Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag, 1:0, með marki Luka Modric á 50. mínútu. Þar með tapaði Guus Hiddink sínum fyrsta leik með Chelsea, sem mistókst að minnka forskot Manchester United á toppnum, en þeir töpuðu einnig í dag.

Liverpool getur því skotist í annað sætið á morgun með sigri á Aston Villa á Anfield Road og komist í 64 stig, en Man Utd er með 65 stig á toppnum og á leik til góða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert