Gerrard og Benitez bestir í mars

Steven Gerrard.
Steven Gerrard. Reuters

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, er besti leikmaður ensku deildarinnar í marsmánuði og Rafael Benítez, stjóri félagsins, besti knattspyrnustjóri mánaðarins. Mars sem sagt mánuður Liverpool.

Gerrard hefur farið fyrir sínum mönnum í síðustu leikjum en liðið sigraði í öllum þremur leikjum sínum í mánuðinum og markatalan 11:1.

Fyrirliði Liverpool er nú valinn besti leikmaður mánaðarins í fimmta sinn sem mun vera met. Marmánuður virðist vera hans mánuður því hann var valinn bestur í mars 2001, mars 2003 og svo núna auk þess sem hann var valinn bestur í desember 2004 og apríl 2006.

Benítez er fyrstur stjóra til að verða valinn í tvígang í vetur, en hann var einnig besti stjórinn í október.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka