Tvísýnt með Steven Gerrard

Steven Gerrard var ofurliði borinn á Anfield í gærkvöld og …
Steven Gerrard var ofurliði borinn á Anfield í gærkvöld og situr hér á vellinum eftir eitt návígið við Michael Essien. Reuters

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, er tæpur vegna meiðsla í nára og ekki er víst að hann verði með liðinu gegn Blackburn í úrvalsdeildinni á laugardaginn eða gegn Chelsea í Meistaradeild Evrópu á Stamford Bridge á þriðjudaginn kemur.

Gerrard fór í nákvæma skoðun á æfingasvæði Liverpool í morgun en Rafael Benítez knattspyrnustjóri sagði við Sky Sports að það skýrðist ekki fyrr en með morgni hvernig ástand hans væri.

Gerrard náði sér ekki á strik í leiknum við Chelsea í gær en Michael Essien átti sannkallaðan stórleik með Chelsea og náði að halda Gerrard í skefjum mestallan tímann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert