Benítez: Fullkomin svörun hjá leikmönnum

Rafael Benítez.
Rafael Benítez. Reuters

Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool hrósaði sínum mönum í hásterkt eftir leikinn gegn Blackburn í dag en eftir að hafa tapað á heimavelli fyrir Chelsea í Meistaradeildinni í vikunni fóru liðsmenn Liverpool á kostum og burstuðu Blackburn, 4:0.

,,Að spila góðan leik, skora fjögur mörk og halda markinu hreinu. Þetta var fullkomin svörun hjá leikmönnum mínum,“ sagði Benítez. Við hefðum hæglega getað unnið stærri sigur því við fengum nokkur opin færi en ég var hæstánægður með frammistöðu liðsins. Það var gott að ná að skora tvö mörk undir lokin og þau gætu reynst dærmæt þegar upp verður staðið,“ sagði Benítez sem gat leyft sér þann munað að spara fyrirliðann Steven Gerrard fyrir leikinn gegn Chelsea í Meistaradeildinni á þriðjudaginn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka