Óvíst hvort Henry leiki með Börsungum

Thierry Henry fagnar einu af mörkum sínum með Barcelona á …
Thierry Henry fagnar einu af mörkum sínum með Barcelona á tímabilinu. Reuters

Óvíst er hvort Thierry Henry verði með Barcelona í kvöld þegar liðið mætir Bayern München í síðari viðureign liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í knattspyrnu. Henry gat ekki æft með Börsungum á Allianz Arena í gærkvöld en Frakkinn fékk hita og hélt fyrir á hótelinu þar sem liðið býr.

Börsungar mæta til leiks í kvöld með gott veganesti en þeir unnu heimaleikinn 4:0 og eru svo gott sem komnir í undanúrslitin þar sem andstæðingarnir verða Chelsea eða Liverpool.

Eiður Smári Guðjohnsen er í 19 manna leikmannahópi sem Pep Guardiola valdi fyrir leikinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert