Liverpool hyggst losa sig við Babel

Ryan Babel í baráttu við Ítalann Fabio Cannavaro í leik Liverpool og Real Madrid í ... stækka

Ryan Babel í baráttu við Ítalann Fabio Cannavaro í leik Liverpool og Real Madrid í Meistaradeildinni. Reuters

Liverpool ætlar að losa sig við hollenska landsliðsmanninn Ryan Babel í sumar að því er fram kemur í enskum fjölmiðlum í dag. Liverpool keypti Babel frá Ajax fyrir tveimur árum og greiddi fyrir hann 11,5 milljónir punda en Hollendingurinn hefur ekki náð að festa sig í sessi og er hundóánægður með stöðu sína hjá liðinu.

Babel hefur fengið fá tækifæri eftir að Liverpool fékk spænska landsliðsmanninn Albert Riera til liðs við sig fyrir tímabilið en Hollendingurinn hefur aðeins sex sinnum verið í byrjunarliðinu á tímabilinu.

Fleiri leikmenn gætu verið á förum frá Liverpool en Rafael Benítez knattspyrnustjóri liðsins er eins og fleiri kollegir hans að púsla saman leikmannahópi þessa dagana sem hann hyggst tefla fram á næstu leiktíð.

Ítalski bakvörðurinn Andrea Dossena og danski miðvörðurinn Daniel Agger, sem rennur út á samningi eftir næsta tímabil, eru líklegir til að verða seldir í sumar ásamt Babel.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is