Torres vill spila á Ítalíu

Torres vill prófa að spila á Ítalíu einn daginn. stækka

Torres vill prófa að spila á Ítalíu einn daginn. Reuters

Fernando Torres, stjörnuframherji Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, segist gjarnan vilja spila á Ítalíu einn daginn, jafnvel þýsku Bundesligunni ef svo ber undir.

„Einn daginn gæti ég spilað fyrir stórlið eins og AC Milan eða Inter, þá gæti ég sagst hafa spilað í þremur bestu deildum heims; þeirri spænsku, ensku og ítölsku. Hver veit, einn daginn gæti ég jafnvel spilað í þýsku Bundesligunni. Ég vil þó vera hjá Liverpool í mörg ár í viðbót. Hér er ég heimakær og ég á enn eftir fjögur ár af samningi mínum við félagið. Félagið hefur komið vel fram við mig, líkt og Gerrard og Carragher. Ég vonast til að endurgjalda góðmennskuna með því að vinna enska meistaratitilinn, sem hefur vantað í safnið í öll þessi ár,“ sagði Torres.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is