Áfengisbann hjá Tottenham?

Harry Redknapp hefur fengið nóg af áfengisneyslu leikmanna.
Harry Redknapp hefur fengið nóg af áfengisneyslu leikmanna. Reuters

Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur, hefur hótað því að setja leikmenn sína í áfengisbann í kjölfar þess að fyrirliðinn, Ledley King, var handtekinn aðfaranótt sunnudags, grunaður um líkamsárás í Soho-hverfinu í London.

„Ég mun setja strangar reglur fyrir næsta keppnistímabil þar sem áfengisneysla verður útskúfuð. Fótboltamenn eiga helga sig íþróttinni og ættu ekki að neyta áfengis. Þú setur ekki díselolíu á Ferrari. Ég veit að þetta er harkalegt en þeir fá gríðarhá laun og eru fyrirmyndir barnanna," sagði Redknapp.

King hefur beðist afsökunar á framferði sínu og segir að næturrölt með félögum sínum hafi gengið of langt. Hann var handtekinn en síðan látinn laus gegn tryggingu og mál hans verður tekið fyrir í júlí.

„Þessi vandamál væru úr sögunni ef leikmenn hættu aðdrekka. Það er enn of mikil drykkjumenning í enskum fótbolta þó hún sé ekki næstum því eins slæm og á árum áður. Hjá Tottenham  vinnum við mikið með börnum, sem mörg hver eiga erfitt heima fyrir. Við verðum að setja gott fordæmi. Það er of mikið drukkið af áfengi í Englandi, það eru alltof margir sem telja sig ekki hamingjusama nema þeir hafi fengið sér áfengi," sagði Redknapp.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert