Ian Rush: Owen mun gera það gott hjá United

Mörgum stuðningsmönnum Liverpool þykir ekki gaman að sjá þessa mynd. …
Mörgum stuðningsmönnum Liverpool þykir ekki gaman að sjá þessa mynd. Owen í búningi Manchester United. Reuters

Ian Rush, ein af goðsögnum Liverpool, spáir því að Michael Owen fyrrum framherji Liverpool eigi eftir að gera það gott í herbúðum Manchester United en Owen gekk mjög óvænt í raðir Englandsmeistaranna í gær og ritaði nafn sitt undir tveggja ára samning.

,,Þetta er tækifæri fyrir Michael Owen að ná sér aftur á strik og skora mörk. Hann mun fá sín tækifæri hjá Manchester United og ég er viss um að hann mun skora mörk fyrir félagið,“ sagði Rush í viðtali við Sky Sports fréttastofuna.

Félagaskipti Owens hafa vakið mikla athygli enda ekki oft sem uppalinn leikmaður Liverpool skiptir yfir til erkióvinanna í Manchester United en sá síðasti sem skipti á milli félagana var Paul Ince.

,,Fólk hefur oft afskrifað Owen. Það sagði fyrir ári síðan að hann væri búinn að vera en hann er frábær leikmaður sem kemur til baka sterkari og betri. Persónulega hefði ég viljað sjá hann koma til Liverpool en liðið hefur ekki misst sína bestu framherja og Benítez er ánægður með það sem hann hefur,“ segir Rush sem skoraði á þriðja hundrað marka fyrir Liverpool á árum áður.




mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert