Benítez vísar Ribéry-fréttum á bug

Rafael Benítez er ánægður með þann hóp sem hann hefur …
Rafael Benítez er ánægður með þann hóp sem hann hefur í höndunum. Reuters

Rafael Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool, gefur lítið fyrir fregnir enskra fjölmiðla í gær um að hann sé í þann veginn að kaupa franska sóknarmanninn Franck Ribéry af Bayern München.

Enskir veðbankar snarlækkuðu í gærmorgun líkurnar á því að Ribéry færi til Liverpool en það þykir oft sterk vísbending um að leikmannakaup séu í aðsigi. Ekki tekur Benítez undir það.

„Ég verð fyrst og fremst ánægður með að halda okkar liði saman því ég tel að við þurfum ekki að bæta miklu við. Ég reikna ekki með því að eyða háum fjárhæðum í leikmann, kaupi kannski einhverja sem falla vel inní okkar lið. Það er í forgangi hjá okkur að koma leikmönnunum í gott form, ekki að leita að nýjum. Getan er til staðar í hópnum," sagði Benítez við Liverpool Echo.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert