Manucho farinn frá Man.Utd

Manucho er farinn frá Manchester United.
Manucho er farinn frá Manchester United. Reuters

Angólski knattspyrnumaðurinn Manucho er farinn frá Manchester United eftir 18 mánaða dvöl hjá ensku meisturunum og er búinn að gera fimm ára samning við spænska liðið Real Valladolid.

Manucho, sem er 26 ára sóknarmaður, náði aldrei að festa sig í sessi hjá United og lék aðeins einn leik með liðinu í úrvalsdeildinni. Hann var lánaður um skeið til Panathinaikos í Grikklandi og síðan til Hull seinni hluta síðasta tímabils.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert