Duff kominn til Fulham

Damien Duff.
Damien Duff. reuters

Írski landsliðsmaðurinn Damien Duff er kominn í herbúðir Fulham frá Newcastle. Frá þessu var gengið endanlega í morgun og er samningur Duffs við Lundúnaliðið til þriggja ára. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en það er talið vera 4 milljónir punda eða sem svarar 850 milljónum króna.

,,Ég er ánægður með að það sé búið að ganga frá félagaskiptum og ég hlakka til að byrja að æfa og spila með Fulham. Fulham átti frábært tímabil í fyrra og ég veit eftir að hafa rætt við knattspyrnustjórann að það er mikill metnaður hjá liðinu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert